Einkaráðgjöf

Hljómar þetta eins og þú?

 

Þú ert búin að fá nóg af því að vera í megrun eða átaki. Þú ert búin að prófa alls konar aðferðir og ekkert virkað eins og þú sást fyrir þér. Heilsuráðleggingarnar eru eins og frumskógur sem þú týnist í og þú veist eiginlega ekkert hverju þú átt að trúa lengur. Þú ert búin að fá nóg af því að vera með áhyggjur og samviskubit þegar þú borðar.

Þú veist þú þarft að breyta matarvenjum þínum og hvernig þú nærir líkamann. Þú vilt ná betri stjórn á því hvernig þú borðar og minnka streituna í sambandi við mat og matarvenjur, það er nóg annað í lífinu til að hafa áhyggjur af.

Þér finnst komin tími til að þú öðlist einhverja hugarró þegar kemur að því að borða og nærast. Þú ert tilbúin í að prófa nýjar aðferðir þegar kemur að mat og matarvenjum. Þú veist að þú þarft meiri stuðning en fæst á námskeiðum.

Þá er einkaráðgjöf eitthvað fyrir þig!

 

RagnheidurGudjonsdottir1

Ég er löggiltur næringarfræðingur M.Sc., framhaldsskólakennari og kundalini jógakennari.
Þessi breiði bakgrunnur   leiddi mig í að sérhæfa mig í „mindful eating“ (að nærast í núvitund). Einfaldasta skýringin á „mindful eating“ er að við tengjum saman núvitund (mindfulness) og það að borða. Þá fáum við tækifæri til að hægja á okkur, skoða hugsanir, tilfinningar og upplifanir í sambandi við mat, matarvenjur og okkur sjálf, allt án þess að dæma. Við fáum tækifæri til að minnka streituna og þannig getum við náð betri stjórn. Þannig fáum við tækifæri til að upplifa meiri vellíðan í sambandi við mat og matarvenjur.

Í einkaráðgjöf færðu tækin og tólin sem þú þarft, sérsniðin fyrir þig.

 

60 mín stök einkaráðgjöf

 

Stakur einkatími með kennslugögnum (greiningarviðtal): 14.900 krónur

Hver tími eftir fyrsta tíma: 11.900 krónur.

Byrjaðu ferðalagið að bættri líðan og bókaðu tíma hér
6 vikna einkaþjálfun

Það er talað um að það taki 6 vikur að skapa nýja vana sem haldast. Þú veist að þú þarft meira aðhald þegar þú ert að læra nýjar venjur.

6×60 mín vikulegir einkatímar með kennslugögnum, hugleiðslum og stuðningi í tölvupósti: 55.500 krónur.

 

Byrjaðu ferðalagið að bættri líðan og bókaðu tíma hér

 

12 vikna einkaþjálfun

Þú veist að það tekur þig meira en 6 vikur að koma inn nýjum venjum hjá þér sem endast. Þú þekkir þig best. Þá er hægt að skoða aðstæður og ástæður ennþá betur og fara enn og dýpra en áður.

12×60 mín vikulegir einkatímar með kennslugögnum, hugleiðslum og stuðningi í tölvupósti: 109.000 krónur.

Bónus: Námskeiðið – Að nærast í  núvitund í 6 skrefum fylgir með í kaupunum.

Byrjaðu ferðalagið að bættri líðan og bókaðu tíma hér